Rammagerðin ehf., sem rekur samnefndar gjafavöruverslanir, hefur fengið heimild til að leita nauðasamninga við lánardrottna sína. Markmið nauðasamnings er að ráða bót á ógjaldfærni skuldara og þá einkum með því að lækka skuldir þannig að skuldari verði frekar fær um að standa í skilum.