SARS-CoV-2 veiran, sem veldur COVID-19, greindist ekki á Íslandi í sjö vikur samfleytt fyrr í sumar. Þetta er lengsti tími milli Covid-smita hér á landi frá því að heimsfaraldurinn hófst snemma árs 2020 samkvæmt mælaborði öndunarfærasýkinga. EKKI LENGUR BRÁÐ ÓGN VIÐ LÝÐHEILSU Þessi áfangi markar ákveðin kaflaskil í langri sögu veirunnar hér á landi, en fjögur ár eru liðin síðan daglegt líf landsmanna færðist aftur í eðlilegt horf.Öllum samkomutakmörkunum vegna COVID-19 og takmörkunum á landamærum Íslands var aflétt 25. febrúar 2022. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) lýsti því svo yfir í maí 2023 að Covid-19 væri ekki lengur talin bráð ógn við lýðheilsu á alþjóðavísu.Þótt faraldurinn hafi verið þungur benti rannsókn í læknatímaritinu The Lancet á að mannfall vegna COVID-19 hafi verið hlu