Amnesty vill láta rannsaka hvort Ísraelar hafi framið stríðsglæpi í Líbanon

Mannréttindasamtökin Amnesty International telja Ísraela hafa brotið alþjóðleg mannúðarlög í hið minnsta þremur árásum á Líbanon í mars. Samtökin segja í tilkynningu í dag að í þessum þremur árásum hafi herinn drepið 24 almenna borgara, þar af 12 börn.Herinn hafi drepið heilu fjölskyldurnar og rannsaka eigi hvort hann hafi framið stríðsglæpi.Amnesty rannsakaði þrjár árásir og safnaði gögnum um þær. Ísraelar hafa þó gert mun fleiri árásir á Líbanon. Amnesty telur grundvöll til að álykta að Ísraelsher hafi brotið alþjóðleg mannúðarlög.Meðal ásakana Amnesty er að Ísraelar hafi ekki gert greinarmun á almennum borgurum og hernaðarlegum skotmörkum. Þá hafi árásum verið beint sérstaklega að almennum borgurum og að borgaralegum skotmörkum.„Á einni viku þurrkaði Ísraelsher út heilu fjölskyldurnar,
Amnesty vill láta rannsaka hvort Ísraelar hafi framið stríðsglæpi í Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd