Umsóknarfrestur um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar rann út 28. júní og 22 umsóknir bárust. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Fjallabyggðar. Einn dró umsókn sína til baka.Þórir Hákonarson, sitjandi bæjarstjóri Fjallabyggðar, Kjartan Þór Ragnarsson, sveitarstjóri Reykhólahrepps, og Einar Kristján Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri Skaftárhrepps, eru meðal umsækjenda.