Héraðsdómari á Norðurlandi eystra hafnaði í morgun frávísunarkröfu í hoppukastalamálinu svokallaða. Verjendur mannanna fimm sem hafa réttarstöðu sakbornings gerðu með kröfunni þriðju atlöguna að því að fá málinu vísað frá dómi.Dómari féllst ekki á rökstuðning verjenda, sem í einföldu máli snerist um að ákæran í málinu væri óskýr, samræmdist ekki sönnunargögnum og að rannsókn lögreglu hefði verið ófullnægjandi.Fimm menn voru ákærðir fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi með því að hafa sýnt af sér stórfellt aðgæsluleysi og vanrækslu við rekstur hoppukastalans Skrímslisins á Akureyri. Með því hafi þeir borið ábyrgð á alvarlegum meiðslum fjögurra barna sem köstuðust til þegar jarðfestingar kastalans losnuðu og eitt horn hans fauk upp.Því stefnir í að málið fari loksins í aðalmeðferð í haust, en ák