Búið að hreinsa málningu af tröppunum við Grafarvogskirkju

Búið er að hreinsa málninguna af tröppunum við Grafarvogskirkju. Í gænótt var málað yfir hinsegin fánann á tröppum Grafarvogskirkju með þeim íslenska.Skemmdarverkið sem unnið var á tröppunum fyrir utan Grafarvogskirkju í nótt hefur verið tilkynnt til lögreglu sem rannsakar hvort um hatursglæp sé að ræða.Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju sagði í samtali við fréttastofu í gær að á næstu dögum ætli kirkjan að safna saman fólki til að mála regnbogafánann aftur á tröppurnar.
Búið að hreinsa málningu af tröppunum við Grafarvogskirkju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd