Stjórnvöld í Þýskalandi áætla að 5.120 dauðsföll í landinu megi rekja til mikils hita, flest þeirra til hitabylgjunnar í júní. Þetta tilkynnti Robert Koch stofnunin í dag. Flestir hinna látnu voru eldri en 75 ára. Helgina 27. til 28. júní létust 120 manns í borginni Köln. Það eru fjórum sinnum fleiri dauðsföll en vanalega. Júní var sá hlýjasti í Vestur-Evrópu og sá næsthlýjasti á heimsvísu frá upphafi mælinga, samkvæmt evrópsku loftslagsstofnuninni Kóperníkusi. Hitabylgja geisaði í stórum hluta Evrópu dögum saman seinni hluta júní. Dauðsföllum í Belgíu fjölgaði um 39 prósent í hitabylgjunni og í Frakklandi um 29 prósent. Ferðamaður frá Kína í Frankfurt, sem huldi andlit sitt í hitabylgjunni í júní. Myndin var tekin 27. júní 2026.AP / Michael Probst