Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, er ekki sáttur eftir ummæli Júlíusar Viggós Ólafssonar, formanns Sambands ungra Sjálfstæðismanna, í Spursmálum þar sem rætt var um mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Júlíus Viggó sagði að ef þjóðin myndi kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni hæfist ferli sem fæli í sér aðlögun, ekki aðildarviðræður.