Fannar leiðir hagræðingarteymi í Reykjanesbæ

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að setja á laggirnar sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi til að auka skilvirkni stjórnsýslunnar og bæta rekstur bæjarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu.Verkefnið er liður í stefnu nýs meirihluta að fara í heildstæða endurskoðun á rekstri sveitarfélagsins.Markmiðið er að stuðla að markvissri hagræðingu, bæta þjónustu sveitarfélagsins og tryggja að skattfé íbúa nýtist sem best.Verkefnið er tímabundið og hefur Fannar Jónasson, fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkur, gert verktakasamning við Reykjanesbæ um að leiða það.Í tilkynningu Reykjanesbæjar segir að verkefni hans verði meðal annars að stýra vinnu við svokallaða núllgrunnsáætlun, fara yfir fyrirliggjandi stjórnsýslu- og fjárhagsúttektir, leggja mat á frekari greiningar sem kunna a
Fannar leiðir hagræðingarteymi í Reykjanesbæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd