Þrisvar tilkynnt um fólk sem þóttist vera í dýraeftirliti fyrir MAST

Þrjár tilkynningar hafa borist Matvælastofnun, á síðustu fimm árum, um einstaklinga sem villtu á sér heimildir og sögðust vera í eftirliti á vegum stofnunarinnar. Engin tilkynninganna hefur verið kærð til lögreglu.Fyrr í mánuðinum fór maður hesthúsa á milli á Eyrarbakka og kynnti sig sem eftirlitsmann Matvælastofnunar. Í ljós kom að það var hann alls ekki og tilkynntu umráðamenn dýranna hann til stofnunarinnar.Ekki er vitað hver var að baki eða hvað hann hafði í hyggju. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, segir málið ekki hafa verið kært til lögreglu.„Við höfðum samband við einn aðilann fékk þessa heimsókn til sín. Og viðkomandi gat gefið einhverja lýsingu á aðilanum en ekki neitt nákvæmt, þannig það voru ekkert mikið af upplýsingum sem lágu eftir sem við gátum byggt neina rannsókn
Þrisvar tilkynnt um fólk sem þóttist vera í dýraeftirliti fyrir MAST

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd