Mannbjörg þegar bátur strandaði á skeri

Betur fór en á horfðist þegar bátur með þremur mönnum innanborðs strandaði á skeri utan við Húsavík í morgun. Björgunarsveitin Garðar var kölluð út og fjórir félagar fóru á vettvang á björgunarbátnum Villa Páls.Í færslu björgunarsveitarinnar á Facebook segir að vel hafi gengið að koma bátnum á flot á ný og sigldi hann á eigin vélarafli til hafnar.„Betur fór en á horfðist og engin slys urðu á fólki,“ segir í færslunni.Mynd frá aðgerðunum.Facebook / Björgunarsveitin Garðar
Mannbjörg þegar bátur strandaði á skeri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd