Popúlistar og rasistar fái ekki að endurskilgreina hlutverk íslenska fánans

Atvinnuvegaráðherra segir sorglegt að horfa upp á fólk gera íslenska fánann að tákni sundrungar og óvildar í garð tiltekinna hópa og að sporna verði við þessari þróun.Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra skrifar á Facebook að íslenski fáninn hafi frá upphafi verið sameiningartákn þjóðar sem standi fremst meðal jafningja þegar komi að frelsi, jafnrétti og virðingu fyrir mannréttindum.Tilefni skrifanna er ekki sérstaklega tekið fram í færslunni en líklega er það skemmdarverk við Grafarvogskirkju í gær þegar íslenski fáninn, eða fánalitirnir hið minnsta, voru málaðir yfir regnbogafána á tröppum kirkjunnar. Lögreglan rannsakar skemmdarverkið sem hatursglæp.Hanna Katrín segir að þjóðin megi ekki leyfa því að gerast að íslenski fáninn verði gerður að sundrungartákni.„Við ætlum ekki að va
Popúlistar og rasistar fái ekki að endurskilgreina hlutverk íslenska fánans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd