Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fékk skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta, á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem var haldinn í Ankara. Nafn Kristrúnar er áletrað á byssuna og byssukúlurnar að sögn tyrkneska miðilsins Koza24.Um er að ræða Sarsilmaz SR 38 sexhleypu og er framleidd í Tyrklandi. Tilgangurinn er ekki að þjóðarleiðtoginn eigi byssuna sjálfur heldur á hún að vera geymd á vegum hins opinbera eða sýnd á safni.