Stjórnir SL lífeyrissjóðs og Almenna – Lífsverks lífeyrissjóðs hafa undirritað samrunasamning um tillögu að sameiningu sjóðanna. Verði tillagan samþykkt mun sameinaður lífeyrissjóður hefja starfsemi 1. janúar 2027. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra var viðstaddur undirritunina.