Stjórnvöld í Rússlandi bönnuðu í gær útflutning á díselolíu. Þetta er gert vegna eldsneytisskorts sem kominn er upp vegna hertra árása Úkraínuhers á olíuinnviði.Varaforsætisráðherra Rússlands, Alexander Novak, greindi frá banninu á ríkisstjórnarfundi sem var sendur út í sjónvarpi. Með honum var Vladimír Pútín, forseti Rússlands. Novak sagði ljóst að staðan við bensínstöðvar hefði valdið almenningi áhyggjum. Bannið gildir til 31. júlí. Þá greindi ráðherrann frá því að til stæði að flytja inn eldsneyti frá útlöndum. Fram kemur í útlæga rússneska fjölmiðlinum The Moscow Times að eldsneyti hafi verið sent sjóleiðina frá Indlandi.Úkraínumenn hafa gert árásir á allar helstu olíuhreinsistöðvar Rússlands síðustu mánuði. Í maí fór að bera á eldsneytiskrísu. Stjórnvöld í Úkraínu hafa sagt árásirnar