„Þessir tveir reitir sem borgarráð sendi aftur til skipulagsráðs voru komnir lengst í skipulagi af þéttingarreitunum í Grafarvogi og sú er ástæða þess að þeir komu fyrst til sögunnar. Það er okkar fyrirætlan að stöðva fyrirliggjandi þéttingaráform í hverfinu og skoða ný tækifæri í samvinnu við íbúa,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið.