Olíverð ekki verið hærra síðan um miðjan síðasta mánuð

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur tekið kipp eftir að Bandaríkin og Íran hófu að skiptast á árásum að nýju. Það hækkaði um 6% í gærmorgun.EPA / NYEIN CHAN NAINGOlíuverð hækkaði um 1% við opnun markaða í Asíu í morgun. Verðið hefur þokast hratt upp á við eftir að árásir Bandaríkjanna og Írans hófust að nýju á þriðjudagskvöld, eftir árás Írana á flutningaskip í Hormússundi. Áhyggjur hafa vaknað af frekari truflunum á framboði olíu frá Mið-Austurlöndum.Tunnan af Brent-hráolíu kostaði 78,80 Bandaríkjadali við opnun markaða. Verðið er nú svipað og um miðjan síðasta mánuð, áður en Bandaríkin og Íran undirrituðu viljayfirlýsingu um frið. Donald Trump sagði í gær samkomulagið vera runnið út í sandinn.Verðið er þó enn langt frá þeim hæðum sem það náði við upphaf stríðsins þegar tunnan kostaði nærri 120
Olíverð ekki verið hærra síðan um miðjan síðasta mánuð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd