Hlýjasti júní frá upphafi mælinga í Vestur-Evrópu

Nýliðinn júnímánuður var sá hlýjasti í Vestur-Evrópu og sá næsthlýjasti á heimsvísu frá upphafi mælinga. Frá þessu greinir evrópska loftslagsstofnunin Kóperníkus. Í Evrópu var meðalhitinn 19,14 stig í júní. Það er 1,78 stigum yfir meðaltali áranna 1991 til 2020. Frávikið nam rúmum þremur stigum í Vestur-Evrópu þar sem meðalhiti mánaðarins var 20,74 stig. Á heimsvísu var meðalhitinn í júní 16,54 stig. Það er rúmu hálfu stigi yfir meðaltali.Kröftug hitabylgja geisaði í stórum hluta Evrópu dögum saman í seinni hluta júní og hitamet féllu í fjölda Evrópulanda. Hún hafði alvarleg áhrif á heilsu fjölda manna og olli mikilli fjölgun dauðsfalla í álfunni. TÍÐARI ÖFGAR Í VEÐRI VALDA ÁSKORUNUM Hitamet voru einnig slegin í Evrópu í maí og þá létu hitabylgjur aftur á sér kræla í upphafi þessa mánað
Hlýjasti júní frá upphafi mælinga í Vestur-Evrópu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd