Íranski byltingarvörðurinn segir árásir Íranshers hafa hæft mikilvæga hernaðarinnviði bandaríska hersins í Barein og Kúveit. Bandaríkjamenn hafa ekki tjáð sig um árásir Írana.Í yfirlýsingu byltingarvarðarins segir að árásirnar hafi beinst gegn tveimur herstöðvum í hvoru landi fyrir sig. Þær hafi verið svar við árásum Bandaríkjahers á Íran í kvöld. Ef Bandaríkin ætli sér að halda uppteknum hætti og endurtaka árásir á Íran þá muni Íransher ráðast á fleiri herstöðvar við Persaflóa.Þetta er önnur nóttin í röð sem Bandaríkin og Íran skiptast á árásum.Donald Trump hótaði í gær frekari árásum á Íran og sagði samkomulag um vopnahlé runnið út í sandinn. Fréttamenn AFP segja að þeir hafi heyrt sprengingar í Manama, höfuðborg Barein, skömmu eftir að loftvarnarflautur ómuðu. Þá greindu hernaðaryfirvöl