Leita ferðamanns í grennd við Torfajökul

Björgunarsveitir leita göngumanns sem er kaldur og hrakinn eftir að hafa dottið út í á í grennd Torfajökuls. Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir tilkynningu hafa borist um klukkan hálf níu í kvöld. Hún segir leit standa yfir á því svæði sem staðsetningartækni Neyðarlínunnar staðsetti manninn.Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að ferja fólk með fjarskiptabúnað úr Reykjavík á leitarsvæðið. „Við náum illa sambandi við björgunarsveitirnar, nema slitrótt,“ útskýrir Bryndís.
Leita ferðamanns í grennd við Torfajökul

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd