Keir Starmer, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, fékk skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Ankara í Tyrklandi. Nafn Starmers var grafið í byssuna. Í frétt BBC segir að sambærilegar gjafir hafi verið gefnar öllum þjóðarleiðtogunum sem sóttu fundinn. Þar segir að Erdogan hafi aflétt útflutningshöftum á gjafirnar. Byssa Starmers er engu að síður enn í Tyrklandi, í höndum breskra embættismanna, en bannað er að flytja virk skotvopn til Bretlands. Gert er ráð fyrir að hún verði gerð óvirk áður en hún verður flutt til Bretlands. Leiðtogafundurinn verður síðasti stóri opinberi viðburðurinn sem Starmer sækir sem forsætisráðherra. Hann tilkynnti um afsögn sína í síðasta mánuði.