Hafrúnu Kristjánsdóttur, prófessor í sálfræði, brá í brún þegar hún skrollaði um Facebook í gær og sá að verið væri að líkja Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta lýðveldisins, við engan annan Adolf Hitler. Hún hvetur fólk til að vera kurteisara í umræðunni nú þegar minna en tveir mánuðir eru til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.