Miðstjórn Bandaríkjahers (CENTCOM) segir að frekari árásir á Íran séu hafnar. Sprengingar hafa þegar heyrst á nokkrum stöðum í suðurhluta landsins, segja fjölmiðlar í Íran. Fyrr í dag hótaði Bandaríkjaforseti áframhaldandi árásum á Íran.„Samkvæmt fyrirmælum yfirhershöfðingja hafa hersveitir miðstjórnar Bandaríkjahers hafið frekari árásir á Íran til að draga enn frekar úr getu landsins til að ógna siglingafrelsi um Hormússund,“ segir í færslu CENTCOM á samfélagsmiðlum.„Bandaríkin halda Írönum ábyrgum fyrir tilefnislausum árásum að undanförnu á skip og áhafnir þeirra sem hafa siglt um þessa mikilvægu alþjóðlegu siglingaleið.“Í fréttum íranskra ríkisfjölmiðla segir að sprengingar hafi orðið í borgunum Konarak og Chabahar. Einnig er rafmagnslaust að hluta. Þá hafi loftvarnarkerfi verið virkjuð