Energy Observer 1 er fyrsta skip sögunnar sem notar vetnisorkukerfi, endurnýjanlega orkugjafa og vindknúna aðstoð til siglinga.Skipið kom til hafnar í Reykjavík í gær.Sex eru í áhöfn skipsins sem var sjósett 2017 og hefur ferðast um heiminn til að rannsaka og sýna lausnir sem geta dregið úr kolefnislosun í siglingum.Orka skipsins er öll framleidd um borð.Íslenska fyrirtækið Qair vinnur með Energy Observer að orkuskiptum í sjávarútvegi og næsta kynslóð af skipum gæti verið knúið með ammoníaki.