Jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku „gríðarlega mikilvægt byggðamál“

„Þetta hefur verið einna sárasta óréttlætið í raforkukerfinu hérna á Íslandi, hvað það er mikill munur eftir því hvar fólk á landinu býr,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í viðtali við fréttastofu.Í síðasta mánuði voru á Alþingi samþykktar breytingar á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku. Þær fela í sér að jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku milli dreifbýlis og þéttbýlis eykst úr 60% í tæp 90%. Breytingin tók gildi 1. júlí.„Eðli málsins samkvæmt felur jöfnun í sér að það er örlítil hækkun í þéttbýli til þess að fjármagna mjög stórfellda lækkun í dreifbýli,“ segir Jóhann Páll. Hækkun raforkureiknings í þéttbýli geti numið allt að 180 krónum á mánuði fyrir meðalheimili.„En fyrir heimili í dreifbýli þá er þetta þúsund króna lækkun.“Á vef St
Jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku „gríðarlega mikilvægt byggðamál“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd