Áhyggjur og vonbrigði með breytingar á heilbrigðiseftirliti

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga lýsir vonbrigðum með undirbúning og framkvæmd á breytingum á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits og segir skamman fyrirvara vera verulegt áhyggjuefni. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðsins þar sem tekið var undir fyrri áhyggjur bæjarstjórnar.Á fundi bæjarstjórnar í febrúar sagðist hún ekki telja fyrirliggjandi frumvarp og undirbúning málsins uppfylla kröfur sem gerðar væru til vandaðrar löggjafar, heildstæðrar greiningar og raunhæfrar innleiðingar. Hverjar eru breytingarnar? Alþingi samþykkti í júní frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Fyrirhugað er að breytingarnar taki gildi um áramótin. Verði þær samþykktar færast verkefni heilbrigðiseftirits til ríkisstof
Áhyggjur og vonbrigði með breytingar á heilbrigðiseftirliti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd