Skipverji á fiskiskipi hefur verið sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og vopnalagabrot, með því að hafa skotið þremur skotum að dróna Fiskistofu, sem notaður var við veiðieftirlit, í nóvember árið 2024. Skipverjinn var dæmdur til greiðslu 150 þúsund króna sektar.