Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur myndefni undir höndum þar sem tveir einstaklingar sjást vinna skemmdarverk á tröppum Grafarvogskirkju. Málið er til rannsóknar sem hatursglæpur.Á myndefninu sést til þeirra mála yfir regnbogafána með íslensku fánalitunum.Í tilkynningu lögreglu segir að rannsókn málsins miði vel. Hins vegar sé ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.