Lögreglan á höfuðborgarsvæðinuLögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja manna vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu.Í tilkynningu lögreglu eru mennirnir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. Þá eru þeir sem þekkja til mannanna eða vita hvar þá er að finna einnig beðnir um að hringja í lögregluna eða að senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is.