Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins í Kópavogi, telur að það að mála íslenska fánann yfir hinseginfánann við tröppur Grafarvogskirkju sé hófstilltari gjörningur en að skrifa eitthvað hatursfullt, ef hinseginfáninn væri málaður yfir þann íslenska myndi fólk telja það merkilegan og friðsamlegan gjörning. Málið hefur vakið mikla athygli í dag og kallað fram hörð viðbrögð. Er það nú rannsakað sem hatursglæpur og sagði Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, við MBL að það sé ljóst að minnst tveir voru að verki.