Sakborningar í Straumsvíkurmáli í fjögurra vikna gæsluvarðhald til viðbótar

Níumenningarnir sem handteknir voru í tengslum við umfangsmikið smygl í svokölluðu Straumsvíkurmáli hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í fjórar vikur til viðbótar.Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar.Fyrri gæsluvarðhaldsúrskurður rann út í dag.Málið er það stærsta sinnar tegundar á Íslandi en 106 kílóum af kókaíni var smyglað með skipinu Koznitza sem kom frá Brasilíu í júní.Meðal þeirra sem voru handteknir eru Brasilíumenn, Rúmeni og að minnsta kosti þrír Íslendingar. Tveir þeirra eru Lúther Ólason og Lárus Freyr Einarsson.Gæsluvarðhald yfir sakborningum í stórfelldu kókaínsmyglmáli fyrir tveimur vikum hefur verið framlengt um fjórar vikur. Einn þeirra kom fyrir dómara í dag.
Sakborningar í Straumsvíkurmáli í fjögurra vikna gæsluvarðhald til viðbótar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd