Það er skammt stórra högga á milli fyrir þau sem safna tölvuleikjum á áþreifanlegu formi. Allt útlit er fyrir að endalok tölvuleikja á geisladiskum, Blu-ray og DVD, séu yfirvofandi.24. júní kynntu Rockstar Games að Grand Theft Auto VI, sem er einn eftirsóttasti tölvuleikur allra tíma og væntanlegur í nóvember, kæmi einungis út á stafrænu formi. Það verður enginn geisladiskur, enginn tölvuleikur, í hulstrinu heldur aðeins kóði til að hala leiknum niður. Það var síðan 1. júlí sem Sony tók af skarið og tilkynnti að fyrirtækið myndi hætta framleiðslu og sölu á diskum fyrir Playstation 5 í janúar 2028. Leikjatölvan er ein sú vinsælasta í heiminum.Sony ber fyrir sig að þetta sé gert til að aðlagast breyttum tímum.„Þetta er búið að vera þróun sem er alveg stíft í átt að stafrænum kaupum og núna h