Alvarleg bilun í spenni í Búrfellsvirkjun og viðhald hjá öðrum orkuframleiðendum veldur því að Landsnet skerðir orku um óákveðinn tíma til ákveðinna fyrirtækja á Suðurlandi og Vesturlandi. Skerðingin gæti varað í nokkra daga.Halldór Halldórsson, öryggisstjóri Landsnets, segir að ekki verði mörg fyrirtæki þó fyrir skerðingu.„Það afl sem er til reiðu í kerfinu er minna en ella, þá gerist það að það eru samningar um skerðingarmöguleika hjá mörgum notendum og þær skerðingar eru þá bara virkjaðar.“Halldór segir að bilunin ætti ekki að hafa víðtæk áhrif. GÆTI TEKIÐ NOKKRA DAGA Ragnhildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir að verið sé að gera við spenninn í Búrfellsvirkjun og hann verði kominn aftur í gagnið á næstu dögum.Halldór býst við því sömuleiðis að allt verði komið a