Grímseyjarferjan Sæfari hefur undanfarið siglt á minna afli en vanalegt er til þess að draga úr olíunotkun. Siglingartíminn frá Dalvík til Grímseyjar hefur vegna þessa lengst um 10-15 mínútur.Þetta staðfestir Sólveig Gísladóttir, samskiptafulltrúi Vegagerðarinnar.Í skriflegu svari til fréttastofu segir að ferjan sigli á takmörkuðu afli vegna þeirra gríðarlegu verðhækkana á olíu á heimsmarkaði.„Með því að sigla undir minna álagi næst allt að 30 % minnkun á olíunotkun. Auk þess fer það betur með vélar og allan búnað að keyra vélarnar á minna álagi en gert hefur verið,“ segir Vegagerðin í skriflegu svari til fréttastofu.Siglingartími frá Dalvík til Grímseyjar er um 3-3,5 klukkustundir.