Spákortið sýnir 20+ og bókunum rignir inn á tjaldsvæðum

Það verður brakandi blíða víða um land næstu daga og fram yfir helgi ef marka má spákort Veðurstofunnar. Þar eru fjólubláar tölur yfir landinu austan- og norðaustanverðu, sem þýðir að hitinn fari vel yfir tuttugu stig.Júlí er almennt annasamur á tjaldsvæðum víða um land, en tjaldverðir sem eiga von á mestu blíðunni hafa vart haft undan að taka við bókunum í morgun. Á tjaldsvæðinu á Egilsstöðum er aðalsvæðið að verða fullbókað. Á tjaldsvæðinu Fljótsdalsgrund við Hengifoss stefnir eins í stærstu útileguhelgi ársins.„Það er svona ríflega helmingur stæðanna upptekinn orðinn. Svoleiðis að ég er hræddur um að þetta verði bara kaós og ægilega fínt“, segir Hörður Már Guðmundsson, tjaldvörður á tjaldsvæðinu Fljótsdalsgrund við Hengifoss. „Það er að bætast við mjög hratt bara núna.“Hörður segir því
Spákortið sýnir 20+ og bókunum rignir inn á tjaldsvæðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd