Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins í Bretlandi, Reform UK, ætlar að segja af sér sem þingmaður og knýja fram aukakosningar þar sem hann ætlar að bjóða sig aftur. Enginn hinna stóru stjórnmálaflokkanna ætlar að bjóða fram á móti Farage og virðist því allt stefna í að eini mótherjinn í kosningunum í Clacton-kjördæmi verði Count Binface, grínisti sem gengur um með hjálm í líki öskutunnu.