Greiningadeild Landsbankans spáir því að verðbólga standi í stað í 5,2 prósentum í júlímælingu en aukist í 5,4 prósent í ágústmælingu, meðal annars vegna hækkunar á komugjaldi á heilsugæslustöðvar. Mælist verðbólga yfir 4,7 prósentum í ágúst má slíta kjarasamningum.