Egill Helgason, fjölmiðlamaður, minnist vinar síns Björns Ólafs Ó. Ólafs arkitekts. Björn lést á heimili sínu í París þann 27. júní, 87 ára að aldri, eftir áratuga búsetu í borginni.„Vinur minn Björn Ólafs arkitekt andaðist í hitunum miklu í París. Hann verður kvaddur við athöfn í París í dag,“ segir Egill í færslu á samfélagsmiðlum. „Björn var einn sannasti heimsborgari og menningarmaður sem ég hef kynnst.“Björn vann að byggingarlist víða um heim en best þekkti hann París, þangað sem hann fluttist árið 1958.