Spá því að verðbólga verði umfram forsenduákvæði

Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðbólga haldist óbreytt í 5,2% í júlí. Hún telur flugfargjöld til útlanda hafa mest áhrif til hækkunar og sumarútsölur og lægra bensínverð til lækkunar.Hún telur líklegt að verðbólga mælist yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst. Forsenduákvæði kjarasamninga kveður á um að heimilt sé að segja þeim upp ef verðbólga í ágúst mælist yfir 4,7%.Húsnæðisliðurinn er enn metinn helsta skýring verðbólgunnar. Í samantekt greiningardeildarinnar segir hins vegar að framlag hans hafi minnkað jafnt og þétt síðustu mánuði. FLUGFARGJÖLD 23% HÆRRI EN Í FYRRA Verðathugun greiningardeildar Landsbankans bendir til þess að eldsneytisverð hafi lækkað um tæplega 3% síðan í júní. Heimsmarkaðsverð hafi lækkað talsvert síðasta mánuð en svo hækkað lítillega síðustu da
Spá því að verðbólga verði umfram forsenduákvæði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd