Aukið samstarf um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum

Ísland bættist í dag í hóp fjögurra annarra ríkja sem undanfarin ár hafa unnið að því að auka öryggi á hafinu í Norður-Atlantshafi. Varnarmálaráðherrar Þýskalands, Kanada, Noregs, Danmerkur og Íslands staðfestu þetta á fundi sem haldinn var í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem nú stendur yfir í Ankara í Tyrklandi.„Þetta snýst um samstarf ríkja á þessu svæði sem hafa getu og eru að þróa getu enn frekar og eru að vinna saman á þessu svæði sem er orðið svo mikilvægt, líka til að styrkja tengslin vestur yfir Atlantshaf,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra við þetta tilefni.„Við erum meðal annars að draga fram gistiríkjastuðninginn og hvernig við getum bætt við þetta verkefni.“ FAGNAR AÐKOMU ÍSLANDS Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands skrifað
Aukið samstarf um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd