„Hugmyndin um hótel við Keflavíkurflugvöll hefur verið hluti af framtíðarsýn fyrir svæðið frá því að þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar til ársins 2040 var gefin út 2015,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia.Hann segir áformin hafa verið unnin í víðtæku samráði við nærsamfélagið. „Það er að segja sveitarfélögin, flugvallarsamfélagið og aðra hagaðila.“ SAGÐI ISAVIA GERA ÖÐRUM HÓTELUM VIÐ FLUGVÖLLINN ERFITT FYRIR Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, sagði á dögunum að hann vildi að Isavia yki samstarf við atvinnulíf í nærumhverfi Keflavíkurflugvallar áður en fyrirtækið réðist í að byggja hótel inni á flugvallarsvæðinu.„Það er mjög erfitt fyrir hótelin að nálgast gestina í flugstöðinni. Nú ætlar Isavia að gera þeim enn erfiðara fyrir með því að byggja hótelið á bílas