Íslenski fáninn málaður yfir hinseginfánann

Íslenski fáninn var málaður á tröppur Grafarvogskirkju í nótt yfir hinseginfánann. Nútíminn greinir frá þessu en ekki liggur fyrir hver eða hverjir stóðu að verknaðinum.Vísir hefur eftir séra Örnu Ýrr Sigurðardóttur að þetta hafi ekki verið gert á vegum kirkjunnar. Ekki liggur fyrir hvað viðkomandi gekk til en mikið var rætt um þjóðfánann og hinseginfánann í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í vor.
Íslenski fáninn málaður yfir hinseginfánann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd