Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun, með því að hafa að nóttu til árið 2024, í bíl sínum á ótilteknum stað í Reykjavík, haft önnur kynferðimök en samræði við konu, án samþykkis hennar og með því að beita ólögmætri nauðung. Ákærði er sagður hafa ýtt höfði konunnar að getnaðarlim sínum og neytt hana til að veita honum munnmök, ásamt því að setja fingur í leggöng hennar. Af hálfu brotaþola er gerð krafa um miskabætur að fjárhæð 3,5 milljónir króna. Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 30. júní síðastliðinn.