Samtök Pauls Watson skipstjóra heita 250 þúsund krónum hverjum þeim sem getur veitt rauntímaupplýsingar um staðsetningu hvalveiðiskipa Hvals hf., leiði þær til þess að skipið Bandero geti stöðvað för þeirra.Í færslu samtakanna á Facebook segir að Bandero sé á hvalveiðimiðum en að þau geti ekki stöðvað hvalveiðiskipin því Landhelgisgæslan deili upplýsingum um staðsetningu Bandero með hvalveiðiskipunum, svo þau geti forðast það.„Við þurfum ykkar aðstoð,“ segir í færslunni. „Saman getum við hjálpast að við að stöðva atvinnuhvalveiðar á Íslandi.“