Hæð suðaustur af landinu veldur suðvestlægum áttum. Búast má við vætusömu og svölu veðri í flestum landshlutum en björtu og hlýju veðri fyrir austan. Þar verður hiti að 20 stigum í dag, og allt að 25 stigum á sunnudag, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Öflug hæð er frekar stöðug suðaustur af landinu næstu daga. Hæðin veldur suðvestlægum áttum sem þýðir að búast má við vætusömu og svölu veðri í flestum landshlutum, en björtu og hlýju veðri fyrir austan.Í dag verður suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Dálítil væta af og til, en bjart að mestu austanlands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast fyrir austan. Bætir í rigningu vestantil í kvöld. Á morgun verður suðvestan 5-13 m/s og skúrir, en léttskýjað á Austurlandi. Hiti breytist lítið.Á föstudag gera spár ráð fyrir