Endurupptökudómur hefur það hlutverk að meta hvort dómsmál sem dæmt hefur verið í skulu tekin upp að nýju. Nýlega fjallaði Endurupptökudómur um beiðni Gareese Joshua Gray, dæmds nauðgara, um endurupptöku á máli hans. Háttsemi Gary fólst í því að setjast klofvega yfir 16 ára stúlku á heimili hennar á Norðurlandi, fróa sér og hafa sáðlát yfir andlit hennar þrátt fyrir að hún hafi sagt honum að hún vildi það ekki.