Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur segir Dani tilbúna til þess að verja allt landsvæði sem tilheyrir aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins, þar á meðal sitt eigið.Þetta sagði Frederiksen í samtali við blaðamenn þegar hún var spurð út í það hvort Danir væru reiðubúnir til að verja Grænland hernaðarlega. Spurningin er til komin vegna ummæla Donalds Trumps Bandaríkjaforseta frá því í gær. Á blaðamannafundi með Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta sagði Trump enn á ný að Bandaríkin ættu að ráða yfir Grænlandi.„Að sjálfsögðu verjum við Konungsríkið Danmörku,“ sagði Frederiksen þegar hún var í kjölfarið spurð hvort Danir væru tilbúnir til að verja Grænland fyrir jafnt fjandmönnum sem gömlum vinum. DANIR STÓLI Á FIMMTU GREIN STOFNSÁTTMÁLANS – RÉTT EINS OG BANDARÍKJAMENN Spurð út í v