Bandaríkjaher gerði í gærkvöld röð loftárása á Íran, þrátt fyrir að ríkin hafi samið um vopnahlé í síðasta mánuði og áframhaldandi viðræður um innleiðingu viljayfirlýsingar um frið.Stjórnstöð Bandaríkjahers segir herinn hafa hæft yfir 80 skotmörk, þar á meðal loftvarnarkerfi, ratsjárstöðvar, skotpalla fyrir flugskeyti, auk 60 smárra herskipa Íranshers. Árásirnar hafi verið gerðar í kjölfar árása Írana á þrjú flutningaskip við Hormsússund.Íranski byltingarvörðurinn hét kröftugu svari við árásunum. Hann segir Íransher hafa beint dróna- og flugskeytaárásum að 85 bandarískum skotmörkum. Á meðal skotmarka voru flotastöð í Barein og flugherstöð í Kúveit.Þá segir byltingarvörðurinn að MQ-9 Reaper dróni Bandaríkjahers hafi verið skotinn niður. „TÍMI KÚGUNAR ER LIÐINN“ Bandaríkin afnámu í gær un