Bann við vöruinnflutningi frá ísraelskum landtökubyggðum samþykkt í írska þinginu

Neðri deild írska þingsins samþykkti í gær bann við innflutningi á vörum frá ísraelskum landtökubyggðum í Palestínu. Bannið nær til nokkurra landtökubyggða sem standa utan við alþjóðlega samþykkt landamæri Ísraels.Bannið er fyrst og fremst táknræns eðlis. Verðmæti innflutnings frá umræddum svæðum, sem hefur að mestu verið ávextir, grænmeti og timbur, nam innan við milljón evrum á árunum 2020 til 2024. Frumvarpið var samið af flokkum írsku ríkisstjórnarinnar. Þeir segja orðalag þess hafa tekið mið af ráðgefandi áliti Alþjóðadómstólsins í Haag sem komst að þeirri niðurstöðu árið 2024 að hernám Ísraels á Vesturbakkanum, í Austur-Jerúsalem og á Gaza-ströndinni bryti í bága við alþjóðalög.Írar hafa verið á meðal berorðustu gagnrýnenda Ísraels eftir að stríðið á Gaza hófst í október 2023, í kjöl
Bann við vöruinnflutningi frá ísraelskum landtökubyggðum samþykkt í írska þinginu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd