Umfangsmikil leit að fraktflugvél K2 Airways er hafin í Pakistan. Flugvélin, sem er af gerðinni Boeing 737, missti samband við flugumferðarstjórn eftir að flugmenn tilkynntu um bilun í flugleiðsögutækjum vélarinnar. Fimm voru um borð.Fluggögn benda til þess að flugvélin hafi hrapað í hafið suðvestur af Karachi í Pakistan. Hún var á leið til borgarinnar frá Sharjah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Flugvélin hvarf af ratsjám þegar hún var um 300 kílómetrum undan ströndum Pakistans. Flughæð vélarinnar hafði þá tekið miklum og örum breytingum áður en hún lækkaði að lokum hratt.Flugmálayfirvöld í Pakistan segja fjölda stofnana taka þátt í samhæfðum leitaraðgerðum á hafi úti.Gögn frá Flightradar24 sýna að flughæðin lækkaði um um það bil 5 þúsund fet á einni mínútu. Hún hækkaði svo flugið á ný